Mr. Beggs

The Ghostrat

25.04.2008 18:14:24 / draugurinn

uppáhalds

þetta er nýja uppáhalds lagið mitt : http://www.youtube.com/watch?v=yexeBCx7oow

loverly


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 21:05:05 / draugurinn

Viðskiptalögfræðingur A GOGO

Daginn..

 

fór til Glasgow um seinustu helgi..sem var æðislegt. Við vorum 5 stelpur saman og fólk getur rétt ímyndað sér hversu miklu var eytt í verslunum Glasgowborgar..og á börunum. Ég uppgötvaði að það er vel hægt að drekka sterkt vín ( hef bara drukkið bjór og hvítvín í nokkuð mörg ár). Smakkaði allavega Cosmopolitan í fyrsta skiptið þarna útí og það var um það bil það eina sem ég drakk eftir það ( hef samt heyrt að maður fái á sig kjánahrolls-snobbstimpil ef maður pantar slíkan drykk) ( en mér er alveg sama).

Eníhá..er að fara að útskrifast á morgun..um þetta leyti á morgun verð ég orðin viðskiptalögfræðingur-a-gogo..

 

Sounds nice


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 15:38:43 / draugurinn

ahhh

 

Daginn..

 

jæja þá er maður loksins búinn með ritgerðina. Opinberlega búin með B.s. námið..útskrift 9. feb..jeij! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 11:24:04 / draugurinn

new times

Jæja, þá er ég loksins búin með þessa stærðfræði..náði henni og þarf aldrei aftur að læra þetta drasl. Ég er svo mikill auli í þessu að það er ekki fyndið. Allavega, nú á ég bara eftir að klára ritgerðina mína ( langt komin) og skila svo af mér 15 janúar. Þá er þetta blessaða bs-nám búið. Finito..sem er ótrúlega skrítið..þetta var svo fljótt að líða. En núna er maður orðinn stór og ég byrja í mastersnáminu 21. janúar. Veivei..og það tekur ekki nema 20 mánuði..það líður allt svo fljótt. Ég er búin að fá herbergi uppá bifröst og er farin að hlakka til að flytja uppeftir..gott að skipta um umhverfi. Hlakka líka endalaust til að byrja á nýju námi, þrátt fyrir að ég veit að ég verð komin með ógeð eftir viku..þannig er það víst bara. En það verður gott að hafa sitt eigið aftur..erfitt að eiga ekki sitt eigið baðherbergi og eldhús þegar maður er orðinn vanur því.  Annars hefur seinasti mánuður verið mjög fínn, það er frábært að hafa getað eytt svona miklum tíma með foreldrunum og fjölskyldunni. Ætli það verði ekki erfitt að flytja uppeftir aftur, eins og að flytja að heiman alveg upp á nýtt. En þá þakkar maður guði fyrir góða vini :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 14:35:42 / draugurinn

WTF!!!

Hvern and#&%($# er málið?

 

Blessaður bíllinn okkar er búinn að bila tvisvar í þessari viku! Gaaarg..fyrst fór einhver svissbotn ( again WTF?) og svo fór pústið í morgun. Hvers eiga saklausir námsmenn að gjalda?? maður bara spyr sko..drasl.

Huff puff..pirraður námsmaður.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:40:11 / draugurinn

Upptalning.

Skemmtilegir hlutir:

Útilegur

Sólböð

Gott fólk

Bjór og hvítvín

Hrafnaklukkur

Aloe vera gelið úr apótekinu

Matarboð

Að fara næstum því í bíó

Jack Skellington 

Ekki svo skemmtilegir hlutir:

Sólböð ( ef maður hefur eytt meirihlutanum úr árinu inni og ekki í sólskini á maður það til að brenna mjög auðveldlega)

Þynnka

Hot souce

Drasl heima hjá mér

Að taka til draslið heima hjá mér

Of mikið af gróðri ( of mikið af gróðri endar í hnerrum, nefrennsli og kláða í augum)

Writers' block

Vakna of snemma.  

Að fara of sofa of seint.

 

Allt hlutir síðan um helgina.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 08:12:37 / draugurinn

Flutt.

Jæja þá er maður fluttur til rvk aftur. Það tekur smá stund að venjast því að búa ekki útá landi lengur..til dæmis er fólkið í bónus í rvk ( viðskiptavinirnir ekki afgreiðslufólkið ) miklu stressaðra og leiðinlegra í bænum en í borgarnesi. Ég hélt að þetta með að sveitin væri afslappaðri væri bara urban legend en nei..ég er ekki frá því að það sé bara rétt. Ég er ennþá að venjast því að kalla nýju íbúðina "heim" en það kemur vonandi bráðum..það er kannski helst af því að við erum ennþá með herbergið uppá bifröst á leigu..við vorum of sein að segja upp þannig að við þurftum að borga leigu fyrir júní líka..gaman gaman..

En núna er þessari formlegu skólavist lokið..ég er að skrifa bs ritgerðina mína ( eða þykjast allavega ) og er ekki í tímum. Það er mjög furðulegt og ég fæ reglulega svona kvíðastingi í magann yfir því að ég sé að svíkjast um að mæta í tíma uppá bif..spes..

En annars er fínt að vera í fossvoginum..fullt af grasi..fullt af birki ( fullt af clarityni ) I like it.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 09:03:38 / draugurinn

Flytji flytj

Víííí..

 

er að fara að flytja á föstudaginn..seinni vika seinustu lotunnar byrjuð. Merkilegt að þetta skuli vera að verða búið..þá er það bs-ritgerðin..gaman gaman 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 18:17:58 / draugurinn

Gamlir og góðir..

Daginn..

ég asnaðist inná gamla bloggið mitt. Soldið gaman að renna yfir það nokkrum ( eða tveim árum seinna) og sjá hvað var í gangi á þessum tíma. Þegar ég byrjaði með gamla bloggið var ég að vinna..ég var 22 ára og var á lausu..þannig að ég gerði mjög lítið annað en að mæta í vinnuna, bíða eftir helgunum og detta svo í það þegar þær loksins komu. Mjög mikið annað en það sem maður er að gera í dag. Því miður kannski..veit það ekki alveg..en ég rakst á eina af mínum uppáhalds færslum þarna..sem lýsir því nokkuð vel hversu flókið það getur verið fyrir stelpur að fara á djammið..það er margt sem þarf að koma til og hérna er smá lýsing á því.

 

The Wonder that is the Modern Woman..

Þá er önnur vika byrjuð. Mér er hætt að þykja mánudagar eins leiðinlegir og mér fannst hérna einusinni. Dagarnir eru svo fljótir að líða orðið, vikurnar þjóta áfram. Það er ekki nema rétt 1 og 1/2 mánuður þangað til ég byrja í skólanum. Það er náttúrulega ekkert nema bara ánægjulegheitin. Ég er búin að vera að vinna síðan um áramót og það er fínt að sleppa því í smá tíma. Það var tekið á um helgina líkt og svo oft áður. Föstudagurinn var nú reyndar rólegur. Var hjá frænks að ofurnördast. Við tókum Buffy og höfðum það næs. En laugardagurinn var annað mál. Byrjaði að fara í smá pre-party til Georgio. Þar var samankominn hinn skemmtilegasti lýður. Bingó og Spear fóru á kostum. Þaðan var haldið til Yardley þar sem maður fór að taka sig til fyrir djammið (Var nú reyndar búin að því..en maður getur greinilega aldrei verið með of mikinn gloss). Það er undarlegt hversu langan tíma stelpur geta eytt í að taka sig til. Enda er senarioið oft svona: Finn til fötin og skóna. Það er ljótt, svo maður finnur eitthvað annað. Loks ánægður með átfittið. Sest niður fær sér sígó og opnar fyrsta bjórinn. Kjaftar þessi heil ósköp við vinkonuna sem er í komin til þín ( í þessu tilviki, ég, að bíða eftir Yardley), eða hringir í þær sem eru á leiðinni og bölvar því að þú finnir ekki uppáhalds bh-inn. Hoppar í sturtu. Hoppar útúr sturtu. Þurrkar þér. Klæðir þig í átfittið. Finnur til málningardótið sem er á víð og dreif um allt herbergi. Ferð með málningardótið fram í eldhús/stofu/whatever þar sem þú ert búin að koma þér fyrir. Færð þér eina sígó og heldur áfram með bjórinn sem þú opnaðir. Byrjar að mála þig. Klára það. Færð þér eina sígó og heldur áfram með bjórinn. Ferð og nærð í blásarann og sléttijárnið. Blæst á þér hárið. Færð vinkonuna til að slétta það. (Eða gerir það sjálf fer náttúrulega eftir companyinu). Setur eitthvað í hárið. Færð þér eina sígó og klárar bjórinn. Ferð og leitar að skartgripunum sem þú ætlar að vera með. Finnur þá (oftast) og setur þá á þig. Dáist að nýja hringum sem þú varst að kaupa. Færð þér eina sígó. Opnar nýjan bjór. Ferð og leitar að VÍSA-kortinu sem þú VEIST að þú varst með í gærkvöldi. Finnur það (hjúkket). Færð þér eina sígó og heldur áfram með bjórinn. Uppgötvar að þessi föt sem þú ert í eru ljótustu föt í heimi og ferð í eitthvað annað. Færð þér eina sígó og heldur áfram með bjórinn.... Þetta er normið. Allavega þaðan sem ég kem. Nú loks þegar Yardley var tilbúin kom Belzebub og skutlaði okkur í partý til Frænks. Þangað var mættur hinn myndarlegasti hópur. Þar var margt spjallað og nýju græjurnar hennar Frænks settar í botn. Bara svona til að prófa..Eftir að hafa eitt hálftíma (minnst) í að reyna að fá leigubíl koma þeir. Stefnan var tekin á Pravda. Yardley fór á kostum í einum fyndnasta feluleik sem ég hef orðið vitni af í lengri tíma. Snilld...   

ef þig/ykkur/engum langar að kíkja á gamla bloggið ( og lofa að hlæja ekki ) þá er slóðin www.draugurinn.blogspot.com. Kannski ágætt að taka það fram að ég flutti mig um set yfir á blogcentralið því ég var alltaf að reyna að henda inn linkum á gamla bloggið og gat það ekki. Í staðinn eyddi ég út öllum færslunum mínum og eftir var blönk síða með einu litlu t. Þeir sem hjálpuðu mér við að setja inn fyrstu linkana á síðuna gáfust upp fyrir rest og ég sá sóma minn í að færa mig yfir á blogg sem er ekki alveg jafn flókið. Það má kannski taka það fram að ég er tölvublind sem er nýgreint fyrirbæri hér í heimi. Á við um fólk sem getur ekki fyrir sitt litla líf lært almennilega á tölvu. Má sem dæmi nefna að áður en ég eignaðist fyrsta lappann minn ( sem er líka eini lappinn sem ég hef átt og á ennþá) kunni ég ekki hengja viðhengi við póst ( sony minni til mikillar ánægju ) ( not ). En ég vona að þið sem lesið bloggið hafið gaman af því að sjá hvernig lífið mitt var fyrir þremur árum. Áður en ég flutti uppá bifröst, hóf sambúð, eignaðist kött og týndi því sem ég hafði áður kallað "lífið mitt".  

Og já svona í lokin..ég bætti við myndaalbúmi hérna neðst. Eitthvað virðist ætla að ganga erfiðlega að koma myndum inná þetta..en sem komið er eru þarna 3 eldgamlar myndir..en allar eiga þær það sameiginlegt að innihalda fólk á mismunandi stigum áfengisneyslu. Oh, the good old days.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 18:30:10 / draugurinn

Flutningar

Jæja þá fer að líða að breytingum ( LOKSINS) hjá mér og Rax. Við ætlum að flytja í bæinn eftir einn og hálfan mánuð..vúhú..erum búin að fá íbúð og alles og tilhlökkunin farin að gera vart við sig. Ég klára skólann 1. júní og þá er stefnan tekin á litla krúttlega íbúð í Fossvoginum. Þaðan er stutt ( styttra en úr Hfj allavega ) á bókhlöðuna fyrir mig og styttra á bráðavaktina fyrir Rax ( eldgleypingar, handahlaup og fleira ). Kötturinn fær að vera með og loksins loksins fæ ég almennilegt svefnherbergi ( búin að vera í stúdíó í tvö ár )  Semsagt..góðir tímar framundan.

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 11:50:59 / draugurinn

"van"trú.

www.vantru.is

 

Langar að benda fólki á þessa síðu..ég er greinilega með langan fattara..var að sjá þessa síðu í fyrsta skipti í dag.

Síðan er mjög áhugaverð, þarna eru á ferð trúleysingjar ( en flokka sig ekki sem ákveðinn hóp þrátt fyrir það, trúleysi er ekki trú ) sem viðra skoðanir sínar. Mér finnst ótrúlega merkilegt að aldrei skuli vera hægt að hugsa sér viti borinn mann, með rökrétta og gagnrýna hugsun í sömu andrá og mann sem KÝS að trúa á guð, hvort sem hann er kallaður guð eða allah eða hvað annað sem fólki hugnast. Ég er fermd, ég er skírð, ég ætla mér að gifta mig í kirkju ( ef ég gifti mig yfirleitt) og ég hef hugsað mér að skíra börn mín ( eignist ég einhver) en hef líka hugsað mér að leyfa þeim að velja sjálf hvort þau vilja fermast. Þrátt fyrir að ég sé fullorðin, sé sæmilega gefin, sé í háskólanámi ( og eigi þar af leiðandi að hafa náð ágætis tökum á gagnrýnni hugsun..verandi í lögfræðinámi og svona ) er ég samt ( eftir því sem ég get best séð af lestri pistla vantrúar) kúguð af samfélaginu og hef gefist upp undan þrýstingi þess. Ég hef semsagt ekki valið sjálf að vera kristin, heldur er ég kristin vegna þess að samfélagið krefst þess. Þetta tel ég ekki rétt. Rökin sem ég fengi á móti þessu ( og hef fengið, þar sem ég er í sambúð með trúleysingja) eru þau að ég væri líklegast ekki kristin ef foreldrar mínir væru það ekki, eða ættingjar eða meirihluti samfélagsins í heild. Mér þykja það nokkuð merkilegar fréttir. Þegar ég var lítil bjó ég í Svíþjóð og kynnstist mikið af krökkum ( og fullorðnum) frá mörgum löndum. Þar voru fólk sem aðhylltust islam, búddatrú, hindúatrú og örugglega fleiri trúarbrögð þó ég muni það ekki í dag. Þetta vakti hjá mér mikinn áhuga á trúmálum. Ég hef lesið mér til um mikinn meirihluta þeirra trúarbragða sem ég hef heyrt getið um ( enda alltaf verið mikill bókaormur). Þegar ég varð eldri fór ég svo í trúarbragðafræði í grunnskóla á Íslandi. Þar var þessum þorsta mínum svalað enn frekar. Þegar kom svo að fermingunni þurftum við krakkarnir að mæta í fermingarfræðslu sem samanstóð af því að læra gullnu regluna svokölluðu, trúarjátninguna og faðirvorið. Og nota bene..það voru þeir sem KUSU að fermast sem lærðu þetta. Ég kaus að fermast. Ég vildi það. Og þrátt fyrir að ég hafi verið himinglöð yfir gjöfunum sem ég fékk þá hefði ég fermst hvort sem þær hefðu verið til staðar eða ekki. Eftir því sem ég hef orðið eldri hef ég lesið mér meira til um trúarbrögð. Ástæða þess að ég aðhyllist ennþá kristni er sú að ég kýs að gera það. Kristnin er ekki fullkomin og margar af kenningum hennar tel ég vera rangar ( nenni ekki útí það að ég geti ekki verið kristin ef ég trúi ekki öllu sem hún hefur uppá að bjóða ) til dæmis það að samkynhneigðir hafi minni rétt en aðrir, en þrátt fyrir þetta tel ég mig kristna manneskju. Ég á mjög erfitt með að samþykkja þá skýringu fólks að ég sé einungis trúuð vegna þess að ég er illa upplýst, hafi gefið eftir þrýstingi og er á annan hátt vitlaus og viljalaus. Tel það meira að segja mjög móðgandi. Ef ég má kjósa að vera trúlaus, hlýt ég að mega kjósa að vera trúuð. Það er alltaf erfitt að þola fólk sem vill setja sig á hærri stall en aðrir vegna þess að það "veit betur". Kannski er ég bara villuráfandi sauður, blinduð af kristnu siðgæði og algjörlega ómeðvituð um hinn "rétta" sannleika. Aumingja ég.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 22:57:47 / draugurinn

Draugurinn sökkar feitt, útaf singstarþema og svoleiðis

Vil bjóða fólki að lesa gestabókina mína.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 14:48:22 / draugurinn

Um ljóð og ekki ljóð

 

Ég og vinur minn mr. bob vorum í smá "ljóðabattli"...langaði bara að deila þessu..taka það fram að stuðlar og höfuðstafir eru ekki virtir í þessum "ljóðum..ferskeytlum..whatsyoumacallit"..

 

 

 

 


ShiskeBob® says:

begga sefur blundi værum

kenndur er við fegrun

aðskilur hana frá ljótum gærum

betr'en besta megrun

 

My name is Bex® - álfur- says:

gunni voða abbó er

situr bara og lærir

á meðan begga í rúmið fer

fagra drauma það henni færir


ShiskeBob® says:

skilur hvorki upp né niður

enginn abbó hér

í námi er það vorra siður

að læra og skóla sér

 

My name is Bex® - álfur- says:

hann heldur að hann vinning hafi

heimskan jafnan tel

þótt tunga útum munnin lafi

honum verður ekki um sel

 

ShiskeBob® says:

brýndar klærnar stúlka sýnir

skýtur strákinn á

en ef í hennar vísu rýnir

missir marks á ská

 

My name is Bex® - álfur- says:

hann telur vísu illa ortna

hefur ekki greind

sífellt er hann sig að gorta

en stúlkan flissar í leynd

 

ShiskeBob® says:

er okkar vísur les ég yfir

mér verður ekki um set

að andi braga ennþá lifir

í háu kvalitet

 

My name is Bex® - álfur- says:

fagna snáði, fagna snót

bragarháttur lifir

en heldur þykir mér tíðin ljót

ef ljóðin taka yfir


ShiskeBob® says:

mörgum mönnum þykir að

margt er gott við ljóð

helst er hægt að nefna það

er heilla skal fögur fljóð

 

My name is Bex® - álfur- says:

talmál hefur hentað best

hingað til allavega

dömur skilja, allt að flest

þegar herrar klofið vega

 

ShiskeBob® says:

stráka heillar kona ei

með ljóðagerð að sinni

þú ættir frekar að vinn'í þei

að eldamennsku þinni

 

My name is Bex® - álfur- says:

herran veit ei hvað hann má

talar mikinn óþverrann

daman veit vel hvað hún sá

er dömur heilla reynd'ann

My name is Bex® - álfur- says:

eldamennska það ekki var

heldur ekki gjafir

heldur sýndi hann mikið far

þegar miklar urðu klósett tafir


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 18:47:43 / draugurinn

Munnlegt próf á morgun og hinn...

Íp.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 12:38:35 / draugurinn

Framtíðarhorfur.

Arg..ég nenni ekki að vera til núna..dreymir um hvítar strendur og blátt haf..þegar ég er orðin stór ætla ég að kaupa mér pínulitla eyju í suðurhöfum, rækta pálmatré og llamadýr og hafa það gott. Það verður að sjálfsögðu þráðlaus háhraðatenging, rennandi vatn og subway þarna en annars bara ég og llamadýrin..kannski Rax ef hann vill. Þetta yrði ljúft líf..fullt af sól og sjó. Svo væri ég með hvítvíns gosbrunn á veröndinni. Ahhhhh.........

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Tímaeyðslan
Fréttir
Flottar myndir